Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi um upplýsingar á netinu. Fyrst er sýnt algengt dæmi og svo er sýnt hugmyndir að lagfæringum eftir að ýtt er á "lögum dæmið" takkann. Ég hvet þig þá til að skoða báðar útgáfur af þessum dæmum og hugsa hvernig betur væri hægt að fylla í eyðurnar, útskýra reglurnar og gefa valkosti.
Starfsmannaskrá finnst oft í formi eins og hér fyrir neðan, en hvernig má bæta þessar upplýsingar svo þær séu hannaðar fyrir taugafjölbreytileika?
Nafn | Símanúmer | |
---|---|---|
Gíslína Birgittudóttir | gislina@ | 123-4567 |
Hákon Sigmarsson | hakon@ | 123-4567 |
Sigríður Kjartansdóttir | sigga@ | 123-4567 |
Þór Jóelsson | thor@ | 123-4567 |
Þessi dæmisíða sýnir okkur kort sem gefur góða hugmynd um staðsetningu, ásamt stuttri lýsingu hvernig á að komast að þjónustunni. Þar að auki má búast við að myndir af húsnæði finnist á víðum völl um síðuna. Fyrir mikið af fólki dugar eftirfarandi, en það er hægt draga úr óvissu með því að gefa betri og meiri upplýsingar.
Við erum staðsett á Vívilsgötu 5, gengið er inn að aftanverðu.
Hér er dæmi um upplýsingar um tímapöntun hjá tannlækni. Upplýsingar sem eru gefnar er staðsetning, nafn á lækni, tími og hvernig á að afpanta.
Þú átt tíma hjá Þór Jóelssyni, Tannlækni. Klukkan 14:00, 3. Maí, á Vívilsgötu 5. Afpantanir þurfa að berast viku áður í síma 123-4567 annars er möguleiki á að tíminn verði gjaldfærður.
Algengt er að einhverft fólk læri mikið á samskiptareglur með því að fylgjast með samskiptum hjá öðru fólki. Þá í nærumhverfi, við sjónvarpsáhorf, við lestur o.fl. En þetta er ekki efni sem sýnir okkur hvernig það er að fara til læknis t.d., og þar með eykst mögulega kvíði og óöruggi í þannig aðstæðum. Kynning á félagslegu umhverfi, ætti að vera hluti af grunnþjónustu til að styðja við taugafjölbreytileika, og til að auka aðgengi einhverfs fólks að þjónustu.
Við ættum líka að skapa upplýsingamenningu sem hvetur fólk til að hafa samband og gera kröfur um umhverfi sitt, gefa fólki valkosti og skapa öruggt umhverfi fyrir alla.
Þar sem að vantar oft algjörlega þessar upplýsingar, er dæmið að neðan tómt. En endilega smelltu á takkann til að laga dæmið og við skoðum nokkrar hugmyndir.
Takk fyrir að skoða síðuna. Ég vona að síðan hafi hjálpað að kynna hvernig við hugsum öll öðruvísi, og hvernig við þurfum að efla upplýsingahönnun okkar til að gera pláss, auka aðgengi, og skapa öryggi fyrir mismunandi heila.
Samfélagið er töluvert fátækara og leiðinlegra án þess að hafa taugafjölbreytileika. Þess vegna þarf einhverft fólk að fá stærri rödd í okkar samfélagi, þegar kemur að þeirra upplifun og þörfum. Eins og vonandi sést, þá er þetta efni mér mjög kærkomið, en ég tel að með því að auka upplýsingagjöf okkar getum við fjarlægt stórar hindranir sem taugafjölbreytt fólk upplifir daglega.
Aðeins nokkur auka smáatriði geta veitt fólki nægilegt öryggi til þess að taka erfitt skref og sækja sér þjónustu. Aðeins nokkur smáatriði geta verið munurinn á að upplifa erfitt og kvíðavaldandi samband við þjónustuveitendur, yfir í öruggt og jákvætt samband.